Fotbolti.net
20.07.11 - 19:16
Hafliði Breiðfjörð

Mollon óvænt frá Stjörnunni í Aftureldingu - Lee einnig (Staðfest)

Ahkeelea Mollon er gengin til liðs við Aftureldingu frá Stjörnunni.

Ahkeelea Mollon er gengin til liðs við Aftureldingu frá Stjörnunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Kvennaboltinn
Óvænt félagaskipti urðu í kvennaboltanum í dag þegar Ahkeelea Mollon kantmaður toppliðs Stjörnunnar í Pepsi-deildinni gekk til liðs við Aftureldingu á láni út tímabilið.
Mollon sem er 27 ára gamall kantmaður frá Trinidad & Tobago kom til Stjörnunnar í maí og hafði spilað níu leiki fyrir liðið í deild og bikar og skorað í þeim eitt mark þegar hún skipti í dag og á án efa eftir að styrkja lið Aftureldingar mikið í botnbaráttunni.

Þá fékk Afturelding einnig til liðs við sig sóknarmanninn enska Carla Lee og er í heildina komið með fimm leikmenn til liðs við sig í félagaskiptaglugganum.

Áður hafði Anna Garðarsdóttir komið frá Val, Hekla Pálmadóttir frá Breiðablik og Íris Dóra Snorradóttir frá Fylki en allar munu stúlkurnar fimm verða klárar í slaginn fyrir leikinn mikilvæga gegn Val í undanúrslitum Valitor-bikarsins á föstudagkvöldið.

Afturelding á einnig í harðri baráttu um að halda sæti sínu í Pepsi-deildinni og vann mikilvægan 3-0 sigur á KR í gærkvöldi en þá skoruðu Anna og Íris Dóra báðar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.