20.08.10 - 11:15
Magnús Már Einarsson
Hull fær Jay Simpson frá Arsenal (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Hull City, sem leikur í Championship deildinni á Englandi, hefur keypt framherjann Jay Simpson frá Arsenal.
Þessi 21 árs gamli leikmaður skrifaði undir þriggja ára samning við Hull í gær.
Simpson er uppalinn hjá Arsenal en hann hefur áður verið á láni hjá Millwall, WBA og QPR.
Á síðasta tímabili skoraði hann þrettán mörk í 42 leikjum þegar hann var á láni hjá QPR.
Simpson mun hoppa beint inn í leikmannahóp Hull sem mætir Watford á morgun.

Heimild: BBC