Fotbolti.net
20.08.10 - 12:21
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Milos Krasic til Juventus (Staðfest)

Milos Krasic til Juventus (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Juventus hefur keypt Milos Krasic frá CSKA Moskvu á fimmtán milljónir evra eða um það bil 12,3 milljónir punda.
Þessi 26 ára gamli leikmaður mun skrifa undir fimm ára samning við Juventus.

Krasic gekk til liðs við CSKA árið 2004 og hefur unnið marga titla með rússneska félaginu.

,,Ég er ánægðasti maður í heimi,\" sagði Krasic.

,,Ég hef alltaf haft trú á þessu með Juventus, jafnvel þegar þetta virtist vera erfitt þá var ég viss um að við myndum finna út úr þessu og ég hafði rétt fyrir mér.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.