20.08.10 - 19:24
Magnús Már Einarsson
Peter Odemwingie til WBA (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
WBA hefur keypt nígeríska framherjann Peter Odemwingie frá Lokomotiv Moskvu.
Odewingie er kominn með atvinnuleyfi á Englandi og búinn að skrifa undir tveggja ára samning við WBA.
,,Ég gat ekki hafnað tækifærinu að koma til Englands og spila í úrvalsdeildinni,\" sagði Odemwingie.
Odemwingie, sem er 29 ára, á 51 landsleik að baki með Nígeríu en hann getur einnig leikið á miðjunni.
Möguleiki er á að hann leiki sinn fyrsta leik með WBA þegar liðið mætir Sunderland á morgun.

Heimild: BBC