20.08.10 - 16:01
Magnús Már Einarsson
Edgar Davids til Crystal Palace (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Hollenski miðjumaðurinn Edgar Davids hefur skrifað undir samning við Crystal Palace.
Þessi 37 ára gamli leikmaður lék síðast með Ajax árið 2008 en hann hefur núna ákveðið að rífa fram skóna til að leika með Crystal Palace í Championship deildinni.
Davids gerði samning sem hljóðar upp á að hann fær greitt fyrir hvern leik sem hann spilar en ekki föst laun.
Á ferli sínum hefur Davids meðal annars leikið með AC Milan, Inter Milan, Juventus og Tottenham.

Heimild: Sporting Life