Fotbolti.net
20.08.11 - 08:00
Magnús Már Einarsson

Jósef Kristinn í Grindavík (Staðfest)

Jósef Kristinn í Grindavík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jósef Kristinn Jósefsson mun fá leikheimild með Grindvíkingum á mánudag og leika með liðinu út sumarið en þetta kom fram á vef Morgunblaðsins í gær.
Jósef Kristinn fór til Chernomorets Burgas í Búlgaríu í febrúar en dvöl hans þar var ekki að óskum þar sem félagið stóð meðal annars ekki við launagreiðslur.

Í sumar hefur Jósef æft með Grindvíkingum en búlgarska félagið hefur neitað að skrifa undir félagaskipti.

Málið endaði inni á borði hjá FIFA sem hefur gert Jósef lausan allra mála hjá Burgas.

Jósef hefur því gengið aftur til liðs við uppeldisfélag sitt Grindavík en hann fær leikheimild með liðinu þó að félagakiptaglugginn hafi lokað um síðustu mánaðarmót.

Leyfið var veitt á grundvelli greinar 10.3 í reglugerð KSÍ um félagaskipti, samninga og stöðu leikmanna og félaga og Jósef getur því spilað með Grindavík gegn Víkingi R. á mánudag.

Heimild: Morgunblaðið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.