20.09.07 - 10:19
Magnús Már EinarssonHörður Snævar Jónsson
Grant og Clarke taka við Chelsea af Mourinho (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Clark er hér lengst til vinstri.

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Avram Grant og Steve Clarke hafa verið ráðnir knattspyrnustjórar Chelsea og taka þeir við starfinu af Jose Mourinho hætti hjá félaginu í gær
Grant hefur verið yfirmaður knattspyrnumála hjá Chelsea og mun hann stjórna liðinu ásamt Steve Clarke sem var aðstoðarmaður Mourinho.
,,Chelsea Footbal Club getur staðfest það að Steve Clark og Avram Grant taka við liðinu frá deginum í dag," segir í yfirlýsingu frá Chelsea.
,,Félagið er ánægt með Avram því hann er reynslumikill maður sem getur komið inn í liðið á erfiðum tíma,"
,,Hjá Steve þá höfum við Chelsea mann og hann verður lykilmaður í því að leiða félagið áfram. Avram og Steve hafa full sjálfstraust okkar og stuðnings," segir í yfirlýsingu hjá Chelsea.
Grant er 52 ára gamall og er náin vinur Roman Abramovich sem er eigandi félagsins. Sambands Grant og Mourinho var ekki gott en Grant kom til félagsins í sumar eftir að hafa starfað hjá Portsmouth.
Grant var ekki ánægður með liðsuppstillingu Mourinho en Portúgalinn sagði Grant að skipta sér ekki að skipta sér af liðinu sínu.
Grant hefur þjálfað ísraelska landsliðið, ásamt því að vera stjóri Maccabi Tel-Aviv og Maccabi Haifa.
Jose Mourinho mætti á æfingasvæði Chelsea í Cobham í morgun en hann yfirgaf svæðið 9:45. Hann fór þá framhjá fjölda fréttamanna og ljósmyndara og vildi ekki tjá sig við fjölmiðla.
Grant og Clarke munu stjórna liðinu í sínum fyrsta leik á sunnudag þegar liðið heimsæki Englandsmeistarana í Manchester United.
Sjá einnig:
Jose Mourinho hættur hjá Chelsea (Staðfest)
Jose Mourinho hættur hjá Chelsea (Uppfært)

Heimild: BBC | Heimasíða Chelsea

Clark er hér lengst til vinstri.

Mynd: Getty Images