Fotbolti.net
20.09.10 - 16:24
Magnús Már Einarsson

Marlon King til Coventry (Staðfest)

Marlon King til Coventry (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Coventry, lið Arons Einars Gunnarssonar, gerði í dag eins árs samning við framherjann Marlon King.
Þessi þrítugi leikmaður lék áður með Wigan en hann var dæmdur í fangelsi á síðasta ári og þá lét félagið hann fara.

King losnaði úr fangelsi í júlí síðastliðnum og nú er ljóst að hann mun leika með Coventry á þessu tímabili.

King þekkir til Aidy Boothroyd stjóra Coventry þar sem þeir voru báðir hjá Watford á sínum tíma.

,,Ég er mjög þakklátur fyrir tækifærið sem Coventry hefur gefið mér og ég hlakka til að vinna aftur með Aidy,\" sagði King.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.