Fotbolti.net
20.10.06 - 19:29
Magnús Már Einarsson

Jón Gunnar Eysteinsson í Fjarðabyggð (Staðfest)

Frá undirritun samningsins.

Frá undirritun samningsins.

Canon

Mynd: Gunnar Gunnarsson

Miðjumaðurinn Jón Gunnar Eysteinsson sem hefur leikið með KA undanfarin þrjú ár hefur gengið til liðs við sitt gamla félag Fjarðabyggð en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í kvöld.
Jón Gunnar sem er tvítugur er uppalinn hjá Þrótti Neskaupstað en hann gekk til liðs við KA fyrir sumarið 2004 og lék þá tvo leiki í Landsbankadeildinni. Í fyrra skoraði hann tvö mörk í fyrstu deildinni í sautján leikjum og í ár gerði hann einnig tvö mörk en í sextán leikjum.

Jóhann Bendiktsson skrifaði einnig undir nýjan samning við Fjarðabyggð í dag en liðið mun leika í fyrsta skipti í sögu sinni í fyrstu deildinni næsta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.