20.10.07 - 12:15
Hafliði Breiðfjörð
Sigmundur Kristjánsson í Þrótt (Staðfest)

Sigmundur

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Sigmundur

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Sigmundur Kristjánsson er genginn í raðir síns uppeldisfélags, Þróttar, frá KR en þetta staðfestu Þróttarar nú í hádeginu. Sigmundur er 24 ára gamall gerði þriggja ára samning við félagið . Hann getur spilað á báðum köntunum. Hann hafði fengið samningsboð frá bikarmeisturum FH auk þess sem KR vildi halda honum áfram en valdi að ganga í raðir Þróttara.
Sigmundur gekk í raðir KR frá hollenska liðinu Utrect fyrir tímabilið 2004 en hann hafði þá verið í Hollandi frá árinu 2002 án þess að fá tækifæri með aðalliði félagsins. Hann lék 57 leiki með KR í deild og bikar og skoraði í þeim fimm mörk. Þar af lék hann 15 leiki með liðinu í Landsbankadeildinni í sumar og skoraði í þeim tvö mörk auk þess að spila einn leik í VISA bikarnum.
Hann á að baki 13 leiki fyrir U21 árs landslið Íslands og skoraði í þeim eitt mark auk þess sem hann lék 4 leiki með U19 ára liðinu og skoraði í þeim eitt mark.
Sem fyrr sagði er hann uppalinn í Þrótti þar sem hann lék 20 leiki í 1. deildinni 2001 og 2002 áður en hann fór til Utrecth í Hollandi um haustið 2002.