20.10.09 - 10:19
Hafliði Breiðfjörð
Danka Podovac til Þór/KA (Staðfest)

Danka Podovac er hún gekk til liðs við Fylki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór/KA fékk mikinn liðsstyrk í dag þegar tilkynnt var að Danka Podovac væri gengin til liðs við félagið frá Fylki.
Podovac er 27 ára gamall miðjumaður sem var meðal bestu leikmanna Pepsi-deildarinnar í sumar og skoraði 13 mörk í 17 leikjum Fylkis auk þriggja marka í fjórum bikarleikjum.
Hún hefur leikið hér á landi í fjögur tímabil, fyrst þrjú með Keflavík og svo með Fylki síðasta sumar. samtlas hefur hún skorað 36 mörk í 73 leikjum í efstu deild hér á landi.
Danka sem er frá Serbíu hittir fyrir nokkra landa sína hjá Þór/KA. Ber þar fyrst að nefna þjálfarann Dragan Stojanovic auk þeirra Bojönu Besic og Vesnu Smiljkovic leikmanna liðsins en sú síðarnefnda lék áður með heni hjá Keflavík.
,,Það er mikill fengur fyrir okkar að hafa tryggt okkur þennan leikmann fyrir næsta tímabil. Stefnan er að sjálfsögðu að slást um efstu sætin áfram, við gefum ekkert eftir þar,” er haft eftir Nóa Björnssyni á vef Þór/KA í dag.

Heimild: Vefur Þórs