20.10.09 - 14:38
Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Már Sigurjónsson í Val (Staðfest)

Rúnar Már í leik með HK í sumar.

Mynd: Guðmundur Karl

Rúnar Már í leik með HK í sumar.

Mynd: Guðmundur Karl
Valur hefur fengið Rúnar Már Sigurjónsson til liðs við sig en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í dag. Rúnar Már kemur frá HK þar sem hann hefur leikið undanfarin ár.
Rúnar Már er miðju og kantmaður og þykir mikið efni. Hann er 19 ára gamall og lék með HK undanfarin tvö tímabil.
Hann kemur frá Sauðárkróki þar sem hann fór upp yngri flokkana og hóf meistaraflokksferil sinn með Tindastóli.
Hann spilaði fyrst með meistaraflokki Tindastóls í 2. deildinni sumarið 2005 og lék í heildina 25 leiki með liðinu í deild og bikar og skoraði fimm mörk áður en hann gekk til liðs við HK sumarið 2007.
Fyrsta árið lék hann með B-liði HK, Ými, í 3. deildinni en hóf svo að leika með HK í efstu deild sumarið 2008. Þar átti hann fast sæti í liðinu og lék 37 leiki í deild og bikar og skoraði sex mörk.