20.11.26 - 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Steven Lennon nýr aðstoðarþjálfari Fylkis (Staðfest)

Mynd: Fylkir

Mynd: Fylkir

Mynd: Fylkir

Aron Baldvin Þórðarson, nýr þjálfari Fylkis, hefur fundið sér aðstoðarmann og í það hlutverk hefur hann fengið Steven Lennon.
Lennon var sagður eitt af nöfnunum á blaði Fylkis í Útvarpsþættinum Fótbolta.net fyrir tæpri viku síðan.
Lennon mun með fram aðstoðarþjálfarahlutverkinu sinna afreks- og þróunarstarfi hjá félaginu. Skotinn skrifar undir tveggja ára samning við Fylki.
Lennon kemur frá FH þar sem hann hefur þjálfað 2. flokk. Hann er fyrrum leikmaður FH en lék fyrst með Fram eftir komuna frá Skotlandi fyrir einum og hálfum áratug síðan.

TENGT EFNI
Fór til Rangers sem varnarmaður en endaði svo markahæstur á Íslandi
Hjá FH raðaði Lennon inn mörkum og var um árabil einn allra besti leikmaður efstu deildar. Hann er 38 ára og lagði skóna á hilluna í lok tímabils 2023 eftir að hafa spilað seinni hluta þess tímabils með Þrótti.
Hann er næstmarkahæsti leikmaður í sögu FH á eftir Atla Viðari Björnssyni.
Úr frétt á heimasíðu Fylkis
Knattspyrnugoðsögnin Steven Lennon hefur verið ráðinn til Fylkis og skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Stormsveipinn Steven Lennon þarf vart að kynna fótboltaáhugafólki og telst hann í flokki þeirra albestu erlendu leikmanna sem hér hafa leikið í gegnum tíðina eftir óstöðvandi markaskorun fyrir m.a. Fram og FH. Hann kemur upprunalega úr knattspyrnuakademíu Rangers í Skotlandi en lék einnig með liðum á Englandi, Írlandi og í Noregi áður en hann fluttist alfarið til Íslands þar sem hann hefur komið sér vel fyrir.
Við bjóðum Steven Lennon hjartanlega velkominn í Árbæinn!