Fotbolti.net
20.12.11 - 16:01
Elvar Geir Magnússon

Guðjón Árni Antoníusson til FH (Staðfest)

Guðjón Árni Antoníusson til FH (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Hægri bakvörðurinn Guðjón Árni Antoníusson hefur gengið til liðs við FH en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.

Þetta var tilkynnt á stuðningsmannasíðu FH, fhingar.net.
Samningur Guðjóns við Keflavík rann eftir sumarið en hann var með nýtt samningstilboð frá félaginu auk þess sem hann fór út til reynslu hjá liðum á norðurlöndum.

Guðjón Árni, sem er 28 ára, hefur leikið með Keflvíkingum allan sinn meistaraflokksferil en hann hefur samtals skoraði 15 mörk í 201 deildar og bikarleik frá því árið 2002. Í sumar skoraði hann eitt mark í tuttugu leikjum í Pepsi-deildinni.

Heimild: FHingar.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.