20.12.11 - 18:15
Magnús Már Einarsson
Gunnar Már í ÍBV (Staðfest)

Magnús Gylfason þjálfari ÍBV og Gunnar Már eftir undirskriftina í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

ÍBV hefur gengið frá kaupum á miðjumanninum Gunnari Má Guðmundssyni en hann kemur til félagsins frá FH.
Gunnar Már skrifaði undir þriggja ára samning við Eyjamenn á Hótel Cabin í kvöld.

Á dögunum samþykkti FH tilboð frá bæði ÍBV og Þór í Gunnar Má en hann ákvað að ganga í raðir Eyjamanna. Þar mun hann styrkja miðjuna en ÍBV var í leit að miðjumanni eftir að Finnur Ólafsson gekk í raðir Fylkis á dögunum.
Í sumar var Gunnar Már í láni hjá Þór þar sem hann skoraði eitt mark í tuttugu leikjum í Pepsi-deildinni.
Gunnar Már, sem er 28 ára, er uppalinn hjá Fjölni en hann gekk í raðir FH fyrir tveimur árum.
Gunnar Már er þriðji leikmaðurinn sem Eyjamenn fá í sínar raðir í vetur en áður höfðu Eyþór Helgi Birgisson og Ragnar Leósson komið til félagsins.