20.12.11 - 17:14
Elvar Geir Magnússon
Jordon Ibe til Liverpool (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Wycombe hefur tilkynnt á heimasíðu sinni að Jordon Ibe sé genginn í raðir Liverpool. Ibe er talið mikið efni en þessi sextán ára leikmaður kemur upp úr ungligastarfi Wycombe.
Þrátt fyrir að vera ungur að aldri hefur Ibe fengið tækifæri með aðalliði Wycombe í ensku C-deildinni og staðið sig vel. Hann spilar sem sóknarmaður.
„Þetta er frábært fyrir hann. Auðvitað vildum við halda honum en við vildum ekki standa í vegi fyrir þeim tækifærum sem hann á skilið,\" sagði Gary Waddock, knattspyrnustjóri Wycombe.
„Ég er ekki í nokkrum vafa um að hann verður stjarna og ég mun fylgjast spenntur með framþróun hans.\"
Ibe er yngsti markaskorari í 124 ára sögu Wycombe. Hann spilaði deildabikarleik með liðinu gegn Colchester aðeins 15 ára og 244 daga gamall. Hann skoraði magnað mark eftir einstaklingsframtak í deildarleik gegn Sheffield Wednesday í október en það má sjá í myndbandinu hér að neðan.