Fotbolti.net
21.01.05 - 13:29

Micky Adams ráðinn stjóri Coventry (Staðfest)

Micky Adams ráðinn stjóri Coventry (Staðfest)
Canon
Coventry Sity hafa ráðið Micky Adams sem knattspyrnustjóra félagsins. Hann tekur við af Peter Reid sem hætti hjá liðinu fyrr í janúar eftir að hafa komist að samkomulagi við liðið um að segja af sér.
Adams hefur áður stjórnað Fulham, Brentford, Swansea, Brighton og nú síðast Leicester en hann er 43 ára gamall. Adams hætti hjá Leicester í nóvember eftir tveggja og hálfs árs dvöl þar á bæ.

Adams lék á árum áður með Coventry en á nú mikið verk fyrir höndum enda er liðið í 20. sæti í 1. deildinni. Adrian Heath sem stjórnaði liðinu til bráðabirgða verður aðstoðarmaður Adams sem og stjóri varaliðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.