Fotbolti.net
21.01.09 - 15:00
Hafliði Breiðfjörð

Kári Árnason lánaður til Esjberg (Staðfest)

Kári í landsleik með Íslandi.

Kári í landsleik með Íslandi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Kári Árnason hefur verið lánaður frá AGF í Danmörku til Esjberg en frá þessu var greint í dönskum miðlum í dag. Hann verður hjá Esjberg út tímabilið en snýr svo aftur til AGF.
Esjberg mun þó hafa forkaupsrétt á Kára vilji félagið hafa hann áfram eftir að lánssamningnum lýkur.

Kári hafði staðið sig vel með AGF á tímabilinu þar til hann lenti í meiðslum og náði sér ekki á strik eftir að hafa jafnað sig á þeim.

Kári Árnason er 27 ára gamall. Hann hóf feril sinn hjá Víkingi en gekk í raðir Djurgården í Svíþjóð sumarið 2004 og fór þaðan til Danmerkur.

Hann á að baki 16 landsleiki fyrir Íslands hönd á árunum 2005-2007 og skoraði í þeim eitt mark gegn Svíum ytra.

Ove Petersen er fyrrum þjálfari AGF og tók hann við liði Esbjerg núna um áramótin. Það var í hans tíð sem Kári var fenginn til AGF frá Djurgarden í Svíþjóð og má því segja að Ove hafi tekið Kára með sér til Esbjerg frá AGF. Kári var mikilvægur hlekkur í liði AGF í tíð Ove Peterson og má því ætla að Kára bíði stórt hlutverk á nýjum vígstöðvum.

Heimild: Bold.dk

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.