21.01.09 - 18:17
Hafliði Breiðfjörð
De Jong til Manchester City (Staðfest)

De Jong í leik með hollenska landsliðinu..

Mynd: Getty Images

De Jong í leik með hollenska landsliðinu..

Mynd: Getty Images
Manchester City hefur gengið frá kaupum á hollenska landsliðsmanninum Nigel de Jong sem kemur frá Hamburg í Þýskalandi. Hann skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning við Manchester City í dag eftir að hafa gengið í gegnum læknisskoðun.
Kaupverðið var ekki gefið upp en þýskir fjölmiðlar fullyrða að það sé 18 milljónir punda. De Jong sem er 24 ára gamall hafði klásúlu í samningi sínum við Hamburg um að hann mætti fara frá félaginu á 1,8 milljón punda í sumar.
Hann hefur spilað 66 leiki fyrir Hamburg síðan hann kom frá Ajax á 1,2 milljónir punda árið 2006.
Samningur hans við Hamburg átti að renna út árið 2010 en hann hafði áður lýst því yfir að hann vildi ganga til liðs við stórt félag og að hann flokkaði Manchester City í þann flokk.
Hann er þriðji leikmaðurinn sem City fær í janúar, áður hafði Waney Bridge komið frá Chelsea og Craig Bellamy frá West Ham.

Heimild: BBC