21.01.10 - 13:46
Magnús Már Einarsson
Sigurður Helgi í Leikni R. (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Leiknir R. hefur fengið miðjumanninn Sigurð Helga Harðarson til liðs við sig frá Aftureldingu.
Sigurður Helgi hefur æft með Leiknismönnum undanfarnar vikur en hann skoraði meðal annars í æfingaleik gegn Keflavík á dögunum. Nú hefur þessi 23 ára gamli leikmaður síðan fengið félagaskipti yfir í Leikni.
Sigurður Helgi er uppalinn Fylkismaður en hann hefur leikið með Aftureldingu á láni undanfarin tvö ár og í fyrra skoraði hann þrjú mörk í 21 leik í fyrstu deildinni.
Sigurður Helgi fær leikheimild með Leikni í dag og því getur hann leikið með liðinu gegn sínum gömlu félögum í Fylki í Reykjavíkurmótinu í kvöld.
Þá er varnarmaðurinn Brynjar Óli Guðmundsson á leið aftur í Leikni úr Njarðvík en hann fær þó ekki leikheimild í tæka tíð fyrir leikinn í kvöld.