21.01.10 - 13:37
Hafliði Breiðfjörð
Þórður Ingason í KR (Staðfest) - Hrafn Davíðsson áfram í Fjölni

Þórður Ingason er farinn í KR.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Hrafn Davíðsson spilar með Fjölni í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Þórður Ingason er farinn í KR.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Markvörðurinn Þórður Ingason er genginn til liðs við KR frá Fjölni á láni út komandi tímabil. Hrafn Davíðsson sem hafði æft með KR að undanförnu samdi hins vegar við Fjölni til tveggja ára og spilar með liðinu í 1. deildinni á komandi sumri.
Þórður og Hrafn deildu með sér markmannsstöðunni hjá Fjölni á síðust leiktíð. Þórður spilaði þá 13 leiki og Hrafn 9. Nú er ljóst að það er Þórður sem gengur til liðs við KR.
KR hefur verið að leita sér að markverði fyrir komandi leiktíð en Stefán Logi Magnússon var seldur til Lilleström á miðju sumri og Andre Hansen sem kom á láni til baka frá norska félaginu kemur væntanlega ekki aftur.
Félagið er enn að reyna að fá japanska markvörðinn Akihiro Hayashi frá Plymouth á Englandi og ef af því verður mun hann og Þórður berjast um markmannsstöðuna.
Þórður Ingason er 21 árs gamall. Hann hefur allan sinn feril leikið með Fjölni en var fyrri hluta ársins 2006 á láni hjá Everton og munaði litlu að hann kæmist í leikmannahóp enska félagsins það árið vegna meiðsla nokkurra markmanna en á síðustu stundu fékk félagið undanþágu fyrir leikheimild Mart Poom sem leysti stöðuna.
Hann hóf meistaraflokksferil sinn hjá Fjölni sumarið 2004 og hefur síðan leikið 69 leiki í deild og bikar með Fjölni. Hann hefur leikið með öllum unglingalandsliðum Íslands, 5 með U21, 9 með U19 og 3 með U19.
Stefnt er að því að hann verði kominn með leikheimild með KR fyrir leikinn gegn Víkingi í Reykjavíkurmótinu á laugardag.
Hrafn Davíðsson er 25 ára gamall og kom uppúr unglingastarfinu hjá Fylki. Hann hóf meistaraflokksferil sinn hjá ÍBV þar sem hann lék 2005, 2006 og 2007. Þaðan fór hann til Fjölnis en hefur ekki spilað heilt tímabil þar sem hann hefur verið í námi í Bandaríkjunum.
Hann á að baki 54 leiki í deild og bikar auk þess sem hann hefur leikið 4 leiki með U21 árs landsliðinu og 4 með U19.

Heimild: Vefur KR