21.02.07 - 17:45
Þórður Már Sigfússon
Ólafur Ingi Skúlason til Helsingborgar (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Ingi Skúlason, sem hefur verið á mála hjá Brentford í Englandi undanfarin tvö ár, er genginn í raðir sænska úrvalsdeildarliðsins Helsinborgs IF en þetta staðfesti opinber vefsíða sænska félagsins nú rétt í þessu.
Eins og Fótbolti.net greindi frá í gær hefur Ólafur Ingi skrifað undir þriggja ára samning við félagið og sagði Hans Eklund, aðstoðarþjálfari Helsingborgar, að þetta séu mjög ánægjulegar fréttir fyrir félagið.
,,Ólafur er leikmaður með frábæran karakter og hann er gríðarlega vinnusamur. Hann er miðvallarleikmaður að upplagi en hann getur einnig spilað aðrar stöður.”
,,Áhugi okkar á honum jókst dag frá degi þegar hann æfði með liðinu í æfingaferðalaginu í Suður-Afríku. Hann átti stórleik í æfingaleiknum gegn Santos og sú frammistaða gerði í rauninni útslagið.”

Heimild: Vefsíða Helsingborgar