Fotbolti.net
21.02.08 - 18:45
Davíð Örn Atlason

Ben Sahar til Sheffield Wednesday á láni frá Chelsea (Staðfest)

Ben Sahar til Sheffield Wednesday á láni frá Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sheffield Wednesday hafa nælt sér í Ben Sahar, framherja Chelsea á eins mánaðar lánssamningi.
Þessi 18 ára gamlir ísraeli var á láni hjá Queens Park Rangers fyrr á tímabilinu áður en hann sneri úr láninu og gekk síðan til liðs við Sheffield Wednesday.

Þegar Ben Sahar spilaði sinn fyrsta landsleik gegn Úkraínu í febrúarmánuði á síðasta ári, þá sautján ára gamall var hann yngsti leikmaður sem spilað hefur í ísraelsku landsliðstreyjunni.

Sahar spilaði sinn fyrsta leik fyrir Chelsea í leik gegn Macclesfield í FA bikarnum og viku síðar spilaði hann sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni gegn Wigan Athletic.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.