Fotbolti.net
21.02.08 - 19:00
Hafliði Breiðfjörð

Birkir Halldór Sverrisson í FH (Staðfest)

Birkir Halldór Sverrisson í leik með KA í fyrrasumar en hér hefur hann gætur á Atla Viðari Björnssyni þá leikmanni Fjölnis sem hefur einnig snúið til baka í FH.

Birkir Halldór Sverrisson í leik með KA í fyrrasumar en hér hefur hann gætur á Atla Viðari Björnssyni þá leikmanni Fjölnis sem hefur einnig snúið til baka í FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varnarmaðurinn Birkir Halldór Sverrisson er genginn í raðir FH að nýju en hann kemur frá KA og fær leikheimild með FH á morgun.
Birkir sem er 21 árs gamall hóf feril sinn hjá BÍ á Ísafirði en var eina leiktíð hjá Fram þar sem hann lék með þriðja flokki sumarið 2001. Hann hóf svo meistaraflokks feril sinn hjá BÍ sumarið 2002 og var þar til ársins 2004.

Hann gekk til liðs við FH árið 2004 er hann var á 17. ári en auk hans kom Matthías Vilhjálmsson til FH frá BÍ á sama tíma. Samningur Birkis við FH rann út í lok árs 2006 og fyrir tímabilið í fyrra gekk hann í raðir KA á Akureyri en ekki var um lánssamning að ræða.

Hjá KA var hann fastamaður í byrjunarliði félagsins og lék sem miðvörður í liðinu í 1. deildinni. Hann lék 17 deildarleiki með liðinu í fyrrasumar auk eins leiks í VISA bikarnum og þótti standa sig mjög vel.

FH-ingar höfðu áhuga á að skoða Birki aftur nú í ársbyrjun og hann vildi fá að reyna sig aftur hjá þeim og því hefur hann æft með liðinu það sem af er ári og spilað með þeim æfingaleiki þar sem hann hefur staðið sig vel. Það endaði svo með því að hann gengur nú aftur til liðs við félagið og fær leikheimild á morgun og getur því leikið með FH gegn Víkingi í Lengjubikarnum annað kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.