21.02.12 - 13:10
Daníel Freyr Jónsson
Tomasz Kuszczak lánaður til Watford (Staðfest)

Tomasz Kuszczak.

Mynd: Getty Images

Tomasz Kuszczak.

Mynd: Getty Images
Pólski markmaðurinn Tomasz Kuszczak hefur verið lánaður til B-deildar liðsins Watford frá Manchester United út tímabilið. Kuszczak hafði ekki spilað leik á tímabilinu, en er fjórði í röðinni í rammann hjá United á eftir David De Gea, Anders Lindegaard og Ben Amos.
Kuszczak, sem er 29 ára, kom til United frá WBA sumarið 2006. Hann hefur alltaf verið varamarkmaður hjá liðinu, mest megnis á eftir Hollendingnum Edwin Van Der Sar.
Watford sigla lygnan sjó í Championship deildinni í 14. sæti, 15 stigum frá fallsæti og 11 stigum frá þáttökurétt í umspili um úrvalsdeildarsæti. Kuszczak mun berjast við Scott Loach um markmannsstöðuna.

Heimild: Heimasíða Man Utd