Fotbolti.net
21.02.12 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Bjarki Már Árnason í KF (Staðfest)

Bjarki í baráttunni á Króknum.

Bjarki í baráttunni á Króknum.

Canon

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Bjarki Már Árnason hefur skipt yfir í 2. deildarlið KF, Knattspyrnufélag Fjallabyggðar.

Bjarki hefur verið lykilmaður hjá Tindastóli undanfarin ár en hann var í liði ársins í annarri deildinni síðastliðið sumar sem og árið 2009.
Þessi 33 ára gamli varnarjaxl ákvað að róa á önnur mið og æfði meðal annars með Magna Grenivík.

KF hafnaði í sjötta sæti 2. deildarinnar í fyrra en Tindastóll vann deildina og spilar í 1. deild á komandi sumri.

Tindastóll hefur misst fjóra elstu leikmenn liðsins frá síðustu leiktíð. Dejan Miljokovic er genginn í raðir Fjarðabyggðar, ekki verður samið aftur við Milan Markovic og Gísli Eyland hefur lagt hanskana á hilluna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.