Fotbolti.net
21.02.12 - 15:04
Elvar Geir Magnússon

Richard Offiong skiptir yfir í KA (Staðfest)

Offiong í leik með KA.

Offiong í leik með KA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Richard Offiong, 28 ára enskur sóknarmaður, er að skipta yfir til KA. Þetta staðfesti Gunnlaugur Jónsson, þjálfari liðsins, í samtali við Fótbolta.net.

Ekki er þó búið að semja við Offiong út tímabilið en hann mun verða hjá KA næsta mánuðinn eða svo og leika með liðinu í Lengjubikarnum áður en ákvörðun um framhaldið verður tekið.
Offiong hóf feril sinn sem unglingur hjá Newcastle en spilaði aldrei fyrir aðallið félagsins.

Hann hefur víða komið við á ferlinum og meðal annars spilað í Tyrklandi, Suður-Kóreu og Belgíu og var síðast á mála hjá liði í Malasíu.

Lengsta dvöl hans var hjá Hamilton í Skotlandi 2006-2009 þar sem hann skoraði 39 mörk í 94 leikjum.

KA hafnaði í áttunda sæti 1. deildarinnar í fyrra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.