Fotbolti.net
21.02.16 - 20:00
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net

Tíðindi Pepsi-deildarinnar með Tryggva Guðmunds

Auglýsing
Tíðindi Pepsi-deildarinnar með Tryggva Guðmunds
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon fengu Tryggva Guðmundsson í heimsókn í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 á laugardag.
Þeir þrír hafa verið ansi duglegir að mæta í hallirnar í vetur og fylgst grannt með gangi mála hjá íslensku liðunum.

Farið var yfir fréttir af liðum Pepsi-deildarinnar og rætt um hvernig þau hafa litið út í vetur.

Meðal annars var rætt um Gary Martin og sölu hans frá KR yfir í Víking.

„Það sem einkenndi umræðuna um KR í fyrra var Gary Martin. Ég held að það sé svolítið lýjandi að vera með hann í hóp þó hann skili sínu mörkum. Ég þykist vita að bæði liðsmenn KR og þjálfarateymið séu nokkuð sáttir við að þetta hafi verið lausnin,\" sagði Tryggvi í umræðunni.

Hægt er að hlusta á umræðuna í spilaranum hér að ofan en ekki gafst tími til að tala almennilega um nýliða deildarinnar og verður það gert við betra tækifæri.

Sjá einnig:
Hlustaðu á útvarpsþáttinn í heild sinni
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.