sun 21. febrúar 2021 18:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þýskaland: Hoffenheim fór létt með Werder
Munas Dabbur
Munas Dabbur
Mynd: Getty Images
Hoffenheim 4 - 0 Werder
1-0 Ihlas Bebou ('26 )
2-0 Christoph Baumgartner ('44 )
3-0 Munas Dabbur ('49 )
4-0 Georginio Rutter ('90 )

Hoffenheim vann þægilegan 4-0 heimasigur á Werder sem var aldrei í hættu. Hoffenheim leiddi 2-0 í hálfleik og dagskrá var í raun lokið á 49. mínútu þegar Munas Dabbur kom sínum mönnum í 3-0.

Það var svo Georginio Rutter sem skoraði fjórða mark heimamanna á lokamínútu venjulegs leiktíma.

Gestirnir áttu eitt skot á mark heimamanna og kom það í fyrri hálfleik. Annars var lítið að frétta hjá Brimarborgurum.

Hoffenheim er í 11. sæti, þremur stigum fyrir ofan Werder í 12. sætinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner