Matues Mane einn eftirsóttasti bitinn - Everton vill Delap - Tekur Keane við Palace?
   lau 21. febrúar 2026 11:59
Brynjar Ingi Erluson
Slot svarar Rooney: Það er ekkert svo slæmt
Arne Slot
Arne Slot
Mynd: EPA
Arne Slot, stjóri Liverpool, hefur svarað enska sparkspekingnum Wayne Rooney sem sagði Hollendinginn ekki vera með sömu áru og forveri hans hjá Liverpool.

Rooney segist ekki alveg sannfærður um Slot. Hann kallaði hann að vísu góðan náunga en að það væri erfitt að taka við keflinu af Klopp sem hafi náð ótrúlegum árangri með Liverpool-liðið.

Slot hefur svarað Rooney en hann er ekki alveg sammála þessari skoðun Englendingsins.

„Við erum öll ólík. Það eina sem við eigum sameiginlegt er að við höfum báðir unnið deildina og það er ekkert svo slæmt er það nokkuð? Ég held að því fleiri titla sem stjóri vinnur því meiri áru öðlast hann. Ég veit ekki hvort þú sért sammála Wayne Rooney, en ef þetta er almenn skoðun fólks þá held ég að það gæti sagt ykkur að ég hafi verið með meiri áru á síðasta ári en á þessu tímabili,“ sagði Slot.

„En kannski er hann sá eini sem er með þessa skoðun. Ég veit það ekki, seg þú mér. Þetta er í fyrsta sinn sem ég heyri þetta, en það er alveg óhætt að segja að Jürgen sé með áru. Ég get talað um hann, ekki um sjálfan mig, en hann var klárlega með þessa áru. Sigursæll stjóri getur samt líka verið með hana.“

„Ég elska það sem ég er að gera núna og það er nóg fyrir mig. Það skiptir ekki máli hver er mikilvægasta manneskjan hjá félaginu eða ekki. Það eru alltaf eigendurnir ekki satt? Þeir verða að ráða yfirmann íþróttamála sem fær síðan stjóra. Ef þeir taka réttar ákvarðanir þá eru meiri líkur á að ná árangri,“ sagði Slot.
Athugasemdir
banner
banner