Fotbolti.net
21.03.07 - 17:00
Hafliði Breiðfjörð

Andy Cole til Birmingham (Staðfest)

Andy Cole í leik með Portsmouth.

Andy Cole í leik með Portsmouth.

Canon

Mynd: Getty Images

Birmingham gengu í dag frá lánssamningi á Andy Cole framherja Portsmouth út leiktíðina. Cole hafði aðeins verið fimm sinnum í byrjunarliði Portsmouth á leiktíðinni síðan hann kom frá Manchester City á 150 þúsund pund í ágúst.
Steve Bruce stjóri Birmingham er fyrrum liðsfélagi Cole hjá Manchester United en hann telur að koma þessa 35 ára gamla framherja gæti aukið möguleika liðsins á að komast í úrvalsdeildina.

,,Andy getur hjálpað okkur að komast yfir endamörkin í því sem er mjög erfið barátta um að komast upp," sagði Bruce í dag.

,,Ég spilaði með honum hjá United, þó það sé langt síðan, og hann er topp atvinnumaður sem hugsar vel um sjálfan sig. Þess vegna er hann enn leikmaður í úrvalsdeildinni."

,,Við erum með mjög unga leikmenn fremst á vellinum, menn eins og Cameron Jerome, DJ Campbell og Niclas Bendtner þó þeir hafi allir mikla hæfleika. Mér fannst við bara þurfa aðeins meiri reynslu og gæði frammi."


Bruce og Cole léku saman í liði Manchester United frá janúar 1995 fram í maí 1996.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.