21.03.07 - 22:07
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Ólafur Þór Berry til Þróttar (Staðfest)

Ólafur Þór í leik með Reyni í sumar

Mynd: Víkurfréttir

Ólafur Þór í leik með Reyni í sumar

Mynd: Víkurfréttir
Varnar- og miðjumaðurinn Ólafur Þór Berry hefur gengið til liðs við Þrótt frá Reykjavík en hann kemur frá Keflavík þar sem hann hefur spilað undanfarin tvö ár.
Ólafur kom frá ÍBV árið 2005 og spilaði tvo leiki fyrir Keflavík í Landsbankadeildinni í sumar en var ekki í framtíðarplönum hjá þjálfaranum Kristjáni Guðmundssyni.
Hann fór því fram á að rifta samningnum sínum við félagið og skrifar undir eins samning við Þróttara í vikunni.
Hjá Þrótti hittir hann fyrir Gunnar Oddsson, fyrrum þjálfara Reynis í Sandgerði, en Ólafur var í láni hjá Reyni í sumar og spilaði átta leiki í deildinni.
,,Mér líst mjög vel á þetta, þetta er gott lið, góðir þjálfarar og þéttur hópur sem á eftir að ná árangri í sumar," sagði Ólafur Þór við Fótbolti.net.
Þá sagðist hann einnig ætla að festa sig í sessi hjá 1. deildar félaginu: ,,Ég ætla að festa mig í sessi þarna og gera mitt af mörkum með að koma liðinu upp."