Víkingur R. 3 - 0 FH
1-0 Elías Már Ómarsson ('45 )
2-0 Þorri Ingólfsson ('51 )
3-0 Elías Már Ómarsson ('81 )
1-0 Elías Már Ómarsson ('45 )
2-0 Þorri Ingólfsson ('51 )
3-0 Elías Már Ómarsson ('81 )
Íslandsmeistarar Víkings eru með mjög breiðan hóp og í dag eru þeir að spila tvo leiki, æfingaleik gegn FH og úrslitaleik Bose bikarsins gegn Stjörnunni.
Hópnum stóra er skipt og spilaði annar hópurinn gegn FH á Víkingsvelli í leik sem var að klárast.
Elías Már Ómarsson átti mjög góðan leik gegn FH og skoraði tvö mörk, það fyrra eftir góða sókn og var seinna mark hans glæsilegt. Þorri Ingólfsson skoraði einnig í 3-0 sigri.
Leikur Stjörnunnar og Víkings hefst svo klukkan 17:00 í Miðgarði.
Byrjunarlið Víkings gegn FH: Aron Snær Friðriksson, Tarik Ibrahimagic, Sveinn Gísli Þorkelsson, Róbert Orri Þorkelsson, Davíð Örn Atlason, Jóhannes Kristinn Bjarnason, Daníel Hafsteinsson, Erlingur Agnarsson, Elías Már Ómarsson, Aron Elís Þrándarson, Ármann Ingi Finnbogason.
(Varamenn: Jochum Magnússon, Sveinn Margeir Hauksson, Þorri Ingólfsson).
Athugasemdir

