Fotbolti.net
21.04.06 - 16:08
Magnús Már Einarsson

Severino semur við Keflavík (Staðfest)

Severino semur við Keflavík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Danny Severino frá Ástralíu hefur gert tveggja ára samning við Keflvíkinga en þetta staðfesti Rúnar Arnarsson formaður knattspyrnudeildar félagsins við Fótbolti.net í dag.
Severino sem spilar á miðjunni eða frammi var á reynslu hjá Keflvíkingum þar sem liðið var í æfingabúðum á Spáni og síðan kom hann með liðinu hingað til lands. Fái hann leikheimild ætti hann að geta leikið með Keflavík gegn ÍBV í undanúrslitum deildabikarsins í næstu viku. Severino lék síðast í Ástralíu en hann hefur einnig spilað með Millwall á Englandi og Piacenza á Ítalíu.

Hinn sænski Kenneth Gustafsson hjá Keflavík meiddist í leik liðsins gegn ÍA í deildabikarnum í gær og var óttast að hann hefði fótbrotnað en samkvæmt vef Keflvíkinga var svo ekki og mun hann hvíla næstu daga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.