Fotbolti.net
21.04.08 - 19:08
Magnús Már Einarsson

Hvöt fær ungan Bosníumann (Staðfest)

Hvöt fær ungan Bosníumann (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Hvöt hefur fengið ungan leikmann frá Bosníu til liðs við sig að nafni Edin Ganjac.
Ganjac er tvítugur og getur leikið allar stöður í vörninni sem og aftarlega á miðjunni.

,,Þessi strákur er ungur og mjög fjölhæfur leikmaður sem gefur okkur mikinn styrk varnarlega. Hann getur spilað margar stöður og er mjög teknískur og vonandi fellur hann vel inní okkar hóp," sagði Kristján Óli Sigurðsson þjálfari Hvatar við Fótbolta.net.

Edin er kominn hingað til lands hann lék sína fyrstu leiki með Hvöt um helgina. Á föstudag lék hann æfingaleik með liðinu gegn Víkingi Ólafsvík og þá kom hann við sögu gegn Sindra í Lengjubikarnum í gær.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.