21.04.10 - 13:53
Magnús Már Einarsson
Milan Lazarevic í KS/Leiftur (Staðfest)

Úr leik hjá KS/Leiftri.

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason

Úr leik hjá KS/Leiftri.

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
KS/Leiftur úr annarri deild hefur fengið framherjann Milan Lazarevic til liðs við sig.
Lazarevic er frá Serbíu en hann verður 28 ára gamall á þessu ári.
Lazarevic þekkir til á Íslandi því hann lék með Hvöt í annarri deildinni í fyrra og skoraði þá átta mörk í nítján leikjum.
Hann skoraði meðal annars gegn KS/Leiftri í leik á Ólafsfirði en auk markanna í deildinni þá skoraði hann eitt mark í þremur leikjum í VISA-bikarnum.
Lazarevic er örfættur leikmaður en auk þess að spila frammi getur hann leikið framarlega á miðjunni.