Fotbolti.net
21.05.11 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Eyrún Rakel í Þrótt (Staðfest)

Eyrún Rakel.

Eyrún Rakel.

Canon

Mynd: Þróttur

Kvennaboltinn
Þróttur gerði á dögunum lánssamning við Fylki þess efnis að Eyrún Rakel Agnarsdóttir gengi til lið við félagið.
Eyrún kom við sögu í fyrsta leik Þróttar í Pepsi-deild kvenna og þótti standa sig vel. Eyrún er ungur og efnilegur miðjumaður sem félagið bindur miklar vonir við að styrki hópinn verulega fyrir átök sumarsins.

Tveir leikmenn meistaraflokks kvenna gerðu einnig samning við félagið nýverið en þetta eru þær Hulda Jónsdóttir varnarjaxl og Harpa Lind Guðnadóttir miðjumaður. Báðar gerðu þær 3 ára samning við félagið.

Þær verða væntanlega með liðinu 24.maí gegn Stjörnunni á Stjörnuvelli.

Heimild: Vefur Þróttar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.