21.05.11 - 08:04
Magnús Már Einarsson
Taye Taiwo til AC Milan (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
AC Milan hefur fengið vinstri bakvörðinn Taye Taiwo til liðs við sig frá Marseille í Frakklandi.
Taiwo, sem er 26 ára, verður samningslaus í sumar en hann hefur samþykkt að gera þriggja ára samning við AC Milan.

,,Ég þakka Guð fyrir þessi félagaskipti, að ganga til liðs við stórt félag og AC Milan er draumur sem er að rætast,\" sagði Taiwo.
,,Ég er að fara frá einu stóru félagi í annað, félag sem ég gat einungis dreymt um að spila með þegar ég var krakki.\"
Taiwo spilaði lykilhlutverk þegar Marseille varð franskur meistari í fyrsta skipti í átján ár á síðasta tímabili.

Heimild: BBC