21.05.11 - 12:47
Hafliði Breiðfjörð
Hekla Goodman í HK/Víking (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

HK/Víkingur hefur fengið liðsauka fyrir átökin í sumar en Hekla Goodman er komin í raðir liðsins.
Hún hefur verið búsett í Bandaríkjunum og ekki leikið áður með íslensku félagi.
Frá þessu er greint á vef HK/Víkings í dag.

Hekla er tvítug og hefur spilað með bandarískum skólaliðum en hún lék jafnframt tvo leiki með U19 ára landsliði Íslands fyrir tveimur árum.
Hún er framherji og var í lykilhlutverki í liði William Jessup háskólans í Kaliforníu á síðasta ári.
Hekla var meðal annars valin leikmaður vikunnar í sinni deild í fyrstu vikunni í október 2010, eftir að hafa skorað þrjú mörk og lagt tvö upp í þremur leikjum síns liðs.
Þá var hún valin í úrvalslið númer tvö í Kaliforníudeildinni í lok tímabilsins í nóvember síðastliðinn.

Heimild: Vefur HK/Víkings