Fotbolti.net
21.06.06 - 23:14
Hafliði Breiðfjörð

Kekic skrifar undir hjá Þrótti (Staðfest)

Kaupverðið ekki 5 milljónir

Atli Eðvaldsson þjálfari Þróttar og Kekic kominn í Þróttar búninginn.

Atli Eðvaldsson þjálfari Þróttar og Kekic kominn í Þróttar búninginn.

Canon

Mynd: Þróttur.is

Sinisa Valdimar Kekic er kominn í raðir Þróttar eins og til hefur staðið en þetta var staðfest í tilkynningu frá félaginu nú í kvöld. Kekic gerir samning við Þróttara út árið 2007 og auk þess að spila með liðinu mun hann koma að þjálfun yngri flokka félagsins.
Ekki er rétt sem hefur komið fram í fjölmiðlum að Þróttur greiði Grindavík 5 milljónir króna fyrir Kekic en það er verðmiðinn sem Grindvíkingar höfðu sett á leikmanninn.

Í yfirlýsingu þróttar segir að upphæðin sé mun lægri og að stór hluti hennar sé tengdur því að Þróttur muni spila í efstu deild, ef ekki þá komi ekki til greiðslu. Hluti launa Kekic verður svo tengdur störfum hans í yngri flokkum Þróttar.

Fjármögnun samningins er að stærstum hluta í höndum styrktaraðila Þróttar og kemur því óverulega við rekstur knattspyrnudeildar.

Kekic hefur leikið með Grindavík í fjölda ára en sinnaðist við Sigurð Jónsson þjálfara liðsins og taldi sig ekki geta unnið meira með honum.

Því hóf Grindavík viðræður við önnur félög um að kaupa hann og og heyrðust tölur allt að fimm milljónir króna sem félagið vildi fá fyrir hann og bökkuðu FH og KR frá viðræðum.

Þróttarar náðu hinsvegar sem áður segir samkomulagi um kaupin og því mun Kekic verða klár í að spila með Þrótturum í stórleik næstu umferðar, gegn Fram á föstudagskvöldið klukkan 20:00.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.