Fotbolti.net
21.06.07 - 12:58
Arnar Geir Halldórsson
Ítalska deildin

Dortmund fær Kovac frá Juventus (Staðfest)

Robert Kovac í baráttunni við Harry Kewell á HM í Þýskalandi

Robert Kovac í baráttunni við Harry Kewell á HM í Þýskalandi

Canon

Mynd: Getty Images

Króatíski varnarmaðurinn Robert Kovac er genginn til liðs við Borussia Dortmund í Þýskalandi en samningur hans við Juventus var runninn út.
Leikmaðurinn er ekki ókunnur þýsku deildinni en hann spilaði með Bayern Munchen í fjögur ár áður en hann gekk til liðs við Juventus árið 2005. Samningur Kovac er til tveggja ára.

Kappinn var á leið til Dinamo Zagreb í heimalandinu en það féll upp fyrir á seinustu stundu.

Kovac sem er 33 ára er ætlað að fylla skarð Cristoph Metzelder en hann er sagður vera á leið til spænsku meistaranna í Real Madrid á frjálsri sölu.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.