Fotbolti.net
21.06.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Julius Aghahowa til Kayserispor (Staðfest)

Fagnið sem Aghahowa tekur þegar hann skorar myndi sóma sér vel á hvaða fimleikasýningu sem er.

Fagnið sem Aghahowa tekur þegar hann skorar myndi sóma sér vel á hvaða fimleikasýningu sem er.

Canon

Mynd: Getty Images

Nígeríski framherjinn Julius Aghahowa hefur yfirgefið Wigan og gengið til liðs við tyrkneska félagið Kayserispor.
Þessi 26 ára gamli leikmaður hefur gert þriggja ára samning við Kayserispor en hann náði sér aldrei á strik hjá Wigan.

Aghahowa kom til enska félagsins frá Shakhtar Donetsk í janúar árið 2007 en á einu og hálfu ári hjá félaginu lék hann einungis 23 leiki og var ekki iðinn við kolann.

,,Julius er yndislegur drengur og reyndi sitt besta til að aðlagast lífinu í ensku úrvalsdeildinni,\" sagði Steve Bruce stjóri Wigan.

,,Ég gat aldrei sett út á viðhorf hans, ákafa á æfingum eða í leikjum. Hins vegar náði hann aldrei að komast í byrjunarliðið á þeim tíma sem ég hef verið hjá félaginu og ég tel að það sé best fyrir báða aðila að hann fari. Ég óska honum alls hins besta og vona að hann muni njóta velgengni hjá nýju félagi,\" sagði Bruce.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.