21.06.11 - 07:25
Magnús Már Einarsson
Luis Enrique tekinn við Roma (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Luis Enrique, fyrrum leikmaður Barcelona og Real Madrid, hefur formlega verið ráðinn þjálfari Roma.
Enrique tekur við af Vincenzo Montella sem stýrði Roma síðustu mánuðina á síðasta tímabili.
Ljóst var fyrir nokkrum vikum að Enrique væri að taka við og nú hefur hann krotað undir tveggja ára samning.
Enrique mun fá 2,9 milljónir evra í árslaun á næsta tímabili en 2012/2013 hækkar sú upphæð upp í 3,1 milljón evra.
Enrique, sem er 41 árs, hefur ekki mikla reynslu í þjálfun en hann stýrði áður B liði Barcelona.

Heimild: Sky