Fotbolti.net
21.06.11 - 09:38
Magnús Már Einarsson

O\'Hara til Wolves (Staðfest)

O\'Hara til Wolves (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wolves hefur keypt miðjumanninn Jamie O\'Hara frá Tottenham en talið er að kaupverðið hljóði upp á fimm milljónir punda.
Hinn 24 ára gamli O\'Hara var í láni hjá Wolves síðari hlutann á síðasta tímabili.

Þar skoraði hann þrjú mörk í þrettán leikjum og hjálpaði liðinu að halda sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni.

,,Ég er ánægður með að það sé búið að semja um að Jamie verði leikmaður Wolves,\" sagði Mick McCarthy stjóri Úlfanna.

,,Það gæti hafa tekið svolítinn tíma að klára öll smáatriði en þetta var alltaf að fara að gerast því við vildum semja við hann og hann vildi koma.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.