Fotbolti.net
21.06.26 - 22:46
Ívar Björgvinsson

Sölvi Geir: Við erum að keppa við sjálfa okkur

Auglýsing
Sölvi Geir: Við erum að keppa við sjálfa okkur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur valtaði yfir Fram á Lambhagavellinum í 11. umferð Bestu deildar karla í kvöld. Lokatölur voru 0-5 og Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Fram 0 - 5 Víkingur R.

„Ég er bara virkilega sáttur með frammistöðu minna leikmanna, við byrjuðum hins vegar leikinn ekki alveg nógu sharp fannst mér. Vorum aðeins að klikka á einföldum sendingum og boltinn var að ganga hægt og vorum að framkvæma á röngum tíma en svo bara unnum við okkur inn í leikinn og gerðum það virkilega vel. Við fórum með gott forskot inn í hálfleikinn og vorum staðráðnir í að halda áfram eftir hálfleik sem við gerðum.''

Víkingur hefur nú unnið 11 leiki í röð í Bestu deildinni og eru með 9 stiga forskot á toppi deildarinnar eins og er. 

„Ég er virkilega stoltur af leikmönnunum og þetta var virkilega góð frammistaða hjá okkur. Það er rosalega létt að vera glaður og sáttur með stöðuna eins og við erum búnir að vera að spila í dag en við höfum rætt það okkar á milli að við erum ekkert að fara að hætta og erum alltaf að keppa við sjálfa okkur. Við erum stanslaust að reyna að hækka standardinn hjá okkur.''

Elías Már skoraði þrennu í dag og er kominn með 12 mörk í deildinni og er eins og stendur markahæsti maður deildarinnar.

„Ég er gífurlega ánægður með hann og það eru ekki bara mörkin sem hann skorar, það er vinnuframlagið hjá honum og hvernig hann er að vinna fyrir liðið allt saman. Við leggjum mikla áherslu á það og það er rosalega auðvelt, get ég ímyndað mér, ég hef nú ekki skorað svona mörg mörk áður, að fara aðeins að slaka á og láta rigna upp í nefið á sér en hann gerir það ekki sama hversu vel það er búið að ganga.

Elías hefur farið vel af stað í Víkingstreyjunni.

Elías hefur farið vel af stað í Víkingstreyjunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.