Fotbolti.net
21.06.26 - 22:57
Ívar Björgvinsson

Rúnar eftir stórt tap: Smeykir við að vera komnir í svona stóran leik

Auglýsing
Rúnar eftir stórt tap: Smeykir við að vera komnir í svona stóran leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram tapaði illa fyrir Víkingum á Lambhagavellinum í 11. umferð Bestu deildar karla í kvöld. Lokatölur voru 0-5 og Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Rúnar Kristinsson, þjálfara Fram, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Fram 0 - 5 Víkingur R.

„Þetta var ljótt tap en Víkingar voru bara frábærir hér í dag. Sérstaklega eftir fyrsta markið þá eigum við bara voða lítið af tækifærum til að gera eitthvað hér í dag. Við vorum fínir fyrsta hálftímann en þeir skora úr sínu fyrsta færi eftir 30 mínútur og ég var kannski fúll að þeir færu inn í hálfleikinn tveimur mörkum yfir.''

Fram liðið átti ekki roð í Víking í síðari hálfleik og fá mjög snemma á sig þriðja markið sem drap leikinn algjörlega.

„Þeir skora svo bara eftir einhverjar nokkrar mínútur í seinni hálfleik og komast í 3-0 og þá missum við aðeins hausinn og öll von er farin. Við erum í rauninni bara aldrei líkir sjálfum okkur og því miður allt of ragir við að fara í návígi við þá og Víkingar átu okkur út um allan völl.''

Framarar voru ólíkir sjálfum sér í dag og virkuðu frekar andlausir þegar leið á leikinn.

„Ég held að þetta hafi nú alls ekki verið andleysi, það vildu allir standa sig og það vildu allir gera vel. Ég held að við höfum frekar ekki þorað alveg að gera hlutina sem við erum vanir að gera en margir okkar leikmenn eru flinkir með boltann og geta passað hann vel. Kannski eru menn eitthvað smeykir við að vera komnir í svona stóran leik og við réðum ekki eins vel við það og Víkingar sem eru vanir þessu.''

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.