„Þá leið manni svona að þetta væri týpískt við það að lið í brekku að fá svona mörk á sig"


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér líður bara nokkuð vel. Mér fannst allt sem við ætluðum að kalla fram í liðinu takast. Hrikalega ánægður með hvernig við nálguðumst þennan leik, það var mikil barátta í liðinu, mikið hjarta, vinnusemi, menn að gefa og skilja allt eftir á vellinum" sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs eftir 1-1 jafntefli gegn FH á úti velli í Bestu deildinni.
Hvernig finnst þér leikurinn spilast?
„Við lágum til baka í fyrri hálfleik, við ætluðum að breika á þá. Mér fannst við gera það vel, við fáum mjög klaufalegt mark á okkur, eitthvern veginn skot í leikmann og stöng og frákast og eitthvað. Þá leið manni svona að þetta væri týpískt við það að lið í brekku að fá svona mörk á sig. Við vorum að tala um það að við ætluðum að bregðast betur við því að fá á okkur mark, við gerðum það svo sannarlega í dag, en létum það ekki á okkur fá. Héldum í það sem við ætluðum að gera, mér fannst við fá fullt af sjensum til þess að breika og gera eitthvað í skyndisóknum. Þannig að mér fannst við alveg vera hættulegir, þó að þeir hafi stjórnað leiknum og boltanum, við fáum okkur álitleg upphlaup. í Síðari hálfleik þá ákváðum við að setja aðeins á þá, stíga aðeins á þá, mér fannst það virka frábærlega, það var mikil orka í okkur. Settu þá í vesen, þeir náðu ekki takti, þannig að mér fannst við taka aðeins yfir leikinn að því leytinu. Við þjörmum aðeins á þeim, án þess að skapa alveg nægilega mörg færi en fannst svona sanngjarnt að fá þetta víti og skora úr því."
Eru þessi úrslit eitthvað til þess að byggja ofan á?
„Já. Við fórum í ákveðið svona restart í vikunni. Ákváðum aðeins að kafa djúpt í grunngildin og hvað það þýðir að spila fyrir Þór og hvað það þýðir að spila í efstu deild. Þá þarf að gera margt sem við erum ekki búnir að gera í síðustu leikjum. Hundrað þúsund prósent eitthvað til þess að byggja ofan á."


