Fotbolti.net
21.06.26 - 23:00
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu mörkin: Glæsilegt aukaspyrnumark nýliðanna og frábært svar Úrúgvæa

Úrúgvæ leiðir

Úrúgvæ leiðir

Canon

Mynd: EPA

Staðan í leik Úrúgvæ og Grænhöfðaeyja er 2-1 fyrir Úrúgvæ í hálfleik. Nýliðarnir komust yfir með stórkostlegu aukaspyrnumarki en Úrúgvæar svöruðu með tveimur mörkum undir lok fyrri hálfleiks.
Kevin Pina skoraði eitt flottasta mark mótsins til þessa þegar hann stýrði aukaspyrnu af löngu færi framhjá Fernando Muslera og niðri í hægra hornið.

Skotið var gríðarlega fast og markið sögulegt fyrir Grænhöfðaeyjar, sem eru að spila á sínu fyrsta heimsmeistaramóti.

Sjáðu sturlað aukaspyrnumark Pina

Undir lok fyrri hálfleiks jöfnuðu Úrúgvæar og var markið ansi sérstakt. Federico Vinas var að aðstoða Telmo Arcanjo, leikmann Grænhöfðaeyja, sem lá með krampa, þegar Úrúgvæar keyrðu fram völlinn.

Vinas sleppti fætinum á Arcanjo, rauk inn í teiginn og skapaði usla áður en Rodrigo Bentancur skallaði boltann í stöngina.

Maxi Araujo var fyrstur á frákastið og jafnaði metin. Hann virðist kunna vel við fráköstin því hann bjargaði einmitt stigi fyrir Úrúgvæ gegn Sádi-Arabíu í síðasta leik eftir svipaða stöðu.

Sjáðu markið hjá Araujo

Í uppbótartíma kom Agustin Canobbio boltanum í netið af stuttu færi eftir að boltinn barst inn á teiginn á Araujo. Hann skallaði boltann fyrir Canobbio sem kláraði vel.

Sjáðu markið hjá Canobbio hér
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Kevin Pina skoraði úr aukaspyrnu af 35 metra færi

Kevin Pina skoraði úr aukaspyrnu af 35 metra færi

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.