Fotbolti.net
21.07.06 - 14:09
Magnús Már Einarsson

Garðar Gunnlaugsson til Norrköping (Staðfest)

Garðar Gunnlaugsson til Norrköping (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Garðar Bergmann Gunnlaugsson hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við sænska liðið Norrköping en þetta staðfesti Ólafur Garðarsson umboðsmaður hans við Fótbolti.net í dag.
Garðar sem hefur skorað fimm mörk í Landsbankadeildinni í sumar mun fara til sænska liðsins í næstu viku og því mun hann leika sinn síðasta leik fyrir Val gegn Víking í VISA-bikarnum á sunnudaginn.

Síðastliðinn vetur fór Garðar til skoska liðsins Dunfermline þar sem hann fékk ekki tækifæri en nú er hann farinn í næstefstu deildina í Svíþjóð og hjá Norrköping hittir hann fyrir Stefán Þórðarson fyrrum liðsfélaga sinn hjá ÍA.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.