Fotbolti.net
21.07.06 - 14:31
Magnús Már Einarsson

Alfreð Elías hættur með GG og farinn til Sindra (Staðfest)

Strákarnir í Sindra hafa fengið liðsstyrk.

Strákarnir í Sindra hafa fengið liðsstyrk.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Sindri í annarri deildinni hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir þá átta leiki sem eftir eru í deildinni því sóknarmaðurinn Alfreð Elías Jóhannsson mun leika með þeim út sumarið.
Alfreð Elías hefur verið að þjálfa GG í þriðju deildinni eftir að hann hætti sem leikmaður Grindvíkinga í fyrra en nú hefur hann ákveðið að hætta sem þjálfari og flytjast til Hornafjarðar þar sem hann mun spila með Sindra.

Alfreð hefur þegar fengið leikheimild með Sindra og verður hann því með liðinu gegn Reyni Sandgerði á útivelli á morgun. Sem stendur eru Hornfirðingar neðstir í deildinni með fjögur stig en eitt lið fellur úr annarri deildinni sökum fjölgunar í þeirri fyrstu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.